Ja, nemlig ja:)

Dísa Skvísa

04.02.2007 23:58:12 / shaggy

Opnar á morgun!!!!

Loksins.. LOKSINS..mun ég opna stofuna mína.. og það á morgun:haha: Það hefur ekki tekið neinn smá tíma að ganga frá öllum pappírum og öllu því veseni sem að þeim fylgja.. en þetta hafðist allt saman og ég er bara ready til að taka á móti kúnnum á stofunni minni:haha:
Við hjúin erum búin að vera alla helgina í því að ganga frá stofunni, setja upp myndir, spegla, skraut, smíða smá hér og þar og setja allar vörurnar í hillurnar. Og jú með hjálp frá pabba sem var svo góður að parketleggja og setja upp listana. Takk:*
Svo kom ljósmyndari til mín á laugardeginum til að taka myndir af mér sem að kemur svo í Jyskevestkysten á morgun til að auglýsa stofuna mína.. ohh er svo spennt að ég er alveg að springa hérna. Og núna er bara að krossa alla fingur..og tær og vona að maður hafi eitthvað að gera.

Annars er nú mest lítið að frétta héðan úr danaveldinu. Marianne vinkona vogaði sér að flytja til Köben á fimmtudaginn.. shit hvað ég á eftir að sakna hennar. En maður að nú wildcard svo að ætli maður reyni nú ekki að vera duglegur að heimsækja gelluna og jú Hilduna mína í leiðinni.
Karlinn er svo að fara í einhverja busness ferð til englands í vikunni svo að það verður smá rolegt í kotinu hjá mér í vikunni og ætla sko að njóta þess;)

Jæja verð að fara að sofa .. vinnuborðið mitt kemur eldsnemma í fyrramálið og verð ég nú að vakna til að taka á móti því þar sem að mér tókst að sofa bara þegar að þeir komu með það á föstudeginum:$

Knúser:*

» 35 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 23:44:10 / shaggy

Gleðilegt árið:)

Já Gleðilegt árið elskurnar. Og vona að þið öll hafið haft gleðileg jól!? Jólaskapið mitt mætti sko vel og mikið 23 des.. enda ekki seinna né vædna8| Og voru jólin mín bara yndisleg í alla staði. Ég, Halldóra og pabbi vorum bara 3 á aðfangadagskvöld þar sem að mútta þurfti að vinna og Krissi var í góðu yfirlæti heima á fróninu. Var nottlega agalega fúl yfir því að þetta yrði svona en það var sko algjör óþarfi af mér þar sem að við 3 höfðum það súper huggulegt. Jólasteikin klikkaði auðvitað ekki... og ekki var jólaísinn verri. Og ég hef sko sjaldan étið jafn mikið á 2 tímum sem og ég gerði einmitt það kvöldið;) Svo er alltaf svona hefð hérna í DK að fara í pakkaleik og fórum við einmitt í einn slíkan. Allir.. eða við 3 áttum hver að koma með 3 pakka í leikinn... og hvað haldiði.. ég vann alla pakkana hehe:haha: Og litla sösin var sko ekki sátt með það.. hún varð á no time 5 ára aftur og fór í þessa risa fílu.. heimtaði að byrja leikinn upp á nýtt og ég veit ekki hvað og hvað. En þar sem að ég er svo góð..kannski alltof góð.. ákvað ég að gefa pabba 2 pakka og fílupokanum 2. Þá voru allir sáttir og við gátum haldið áfram að halda gleðileg jól:D Svo var farið að heimsækja múttu á elliheimilið.. og það var bara feikna mikið stuð. Æðislegt að sjá hvað gamla fólkinu þótti gaman og já hversu vel var hugsað um það og gert jólin eins gleðileg og hægt er fyrir þau. Og ég hef sko sjaldan hlegið jafn mikið og akkurat þarna á elliheimilinu.Það fyndnasta var að það var svo gamall félagi sem að sat hjá okkur.. minnir að hann hafi verið um 94 ára og var hann bara hinn hressasti... en allt í einu snír hann sér að múttu minn og spyr hana hvort að manninum hennar þætti gaman að dansa? Mútta brosti mikið og sagði þeim gamla að manninum hennar þætti það nú ekkert alltof skemmtilegt. Þá spyr sá gamli múttu hvort að pabbi hafi dansað mikið á hausnum þegar að hann var ungur? Þá drapst ég nú úr hlátri.. og pabba þótti þetta ekkert of mikið fyndið hjá þeim gamla sem að alveg veltist um af hlátri. Jú jú eins og flestir vita þá er hann faðir minn alveg sköllóttur og það þótti þeim gamla skondið;) Eftir heimsóknina á elliheimilinu var svo haldið heim á leið og rifið pakkana upp.. og fékk ég fullt af fallegum gjöfum.. enn og aftur takk kærlega fyrir mig:*

Svo fór 25 og hálfur 26 des bara í það að éta.. og éta enn meira. Svona eins og maður að jú að gera á jólunum;) Þó svo að viktin banni það... enda er sko tekinn stór sveigur fram hjá henni þessa dagana8|

26 des var ég svo með smá teiti hérna hjá mér aður en haldið var á jólaballið.. svaka mikið fjör og já þónokkuð mikið drukkið. Snilldar kvöld!!!!!

Svo um áramótin voru Marianne og Poul svo yndisleg að bjóða okkur með sér í sumarbústað sem og við auðvitað þáðum. Og já, áramótin voru æði.. svo hugguleg8)

Jæja gott í bili.. nýtt ár já og lofa að taka mig á hérna inni;)

Hafið það gott elskurnar:*

E

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 23:43:38 / shaggy

Jóla hvað???

Já ég ætla sko að byrja á því að afsaka mig hérna. Sko þar sem að ég og tölvur eigum nkl ekkert sameiginlegt og komum eflaust aldrei til með það þá held ég nú bara að þessi blessaða síða mín sé alveg lost.. nema að einhver bjóði fram hjálp sína.. bæði með að kenna mér á þetta allt saman og að kenna mér að tjá mig..somebody??? Ég er nefnilega nokkrum sinnum búinn að rita alveg helling hérna inn og svo ætla ég að staðfesta..og wúup.. tekstinn bara horfinn. Og þar sem að margir eru nú búnir að segja mér að seiva tekstann fyrst.. þá bara því miður gleymi ég því alltaf8| Ég verð alltaf jafn brjáluð þegar að þetta gerist og lít ekki við tölvu druslunni í nokkra daga á eftir.

En nóg um þetta tuð í mér... ákvað nú samt að gera enn eina tilraun með þetta...svona afþví að það eru alveg að koma jól og svo verð ég bara að sjá til hvernig þetta gengur alltsaman á nýja árinu.
Allt er bara að verða ready fyrir jólin.. nema mitt jólaskap. Er búin að kaupa allar jólagjafir og pakka þeim inn.. skrifa slatta af jólakortum..baka.. gera laufabrauð.. hlusta á jólatónlist.. en neinei jólaskapið fer alveg um leið og það byrjar að koma:$ Please einhver að hjálpa mér að komast í rétta gírinn.
Annars er nú samt allt í gúddý hérna í danaveldinu.. skellti mér einmitt til köben snemma í morgun með brósa.. var að fylgja honum í flug til íslands.. já karlinn ætlar bara að yfir gefa familien sína hérna í dk til að vera með öllum öðrum í familien um jólin.. ég á illa eftir að sakna hans:cry: Svo eftir að ég var búin að knúsa hann og kissa bless skellti ég mér í fields til að reyna að klára jólagjafirnir.. og það var svo alltof mikið af fólki þar fyrir minn smekk. Samt gaman frá því að segja að ég hitti Kollu kristjáns.. ekki búin að sjá þá gellu í mörg ár.. já heimurinn er sko lítill. Svo kom Hilda elskan að ná í mig og skelltum við okkur á Istegade. Við strunsuðum niður alla götuna fram hjá endalaustum tippa búðum í leit af einhverju geggjuðu kaffihúsi.. vorum svo næstum komnar á enda götunar og alveg orðnar tilfinningarlausar í puttunum.. föttuðum þá að við værum búnar að strunsa fram hjá þessu kaffihúsi í öllum hamaganginum og snérum við en fundum það svo sem betur fer næstum því efst á götunni. Þetta var svo geggjað kaffihús.. og maturinn..ummmm... mæli sko með því.
Við frænkur náðum nottlega að hugga okkur vel og tala fyrir allt árið:haha:

JÁ.. mér tókst að henda inn slatta af myndum um daginn.. vona að þetta gleðji þitt hjarta Nanna mín.

Jæja ....hafið það gott í jólaundirbúningnum elskurnar og endilega sendir mér jólastuðs strauma;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 14:55:33 / shaggy

Østrig, frænku hittingur og stofan... allt á million!!

Góðan daginn alle sammen. Frökenen í köben kvartar yfir lélegri frammistöðu hérna hjá mér.. eflaust ekki sú eina.. en gamla mín.. ég er nú að standa mig betur en sumir..hum;)

En er búin að vera í fríi frá kennslunni í að verða viku.. ljúft. Voru einhverjir kynningar dagar í skólanum og nennti ég nú ekki að fara að heyra sömu hlutina í 100asta skiptið þannig að ákvað bara að vera í fríi og reyna svona að leggja seinustu ákvörðurnar í sambandi við stofuna mína. Fer alveg að smella hjá mér..svona alveg:) Er búin að fá leyfið frá kommunen, allt orðið ready í sambandi við pöntun á vörum og svo er hún Beggan mín búin að vera svo frábær að hjálpa mér.. gellan er búin að búa til logo fyrir mig, visit kort og bækling... veit sko enganveginn hvað ég mundi gera án þessarar elsku:!: Er einmitt að fara til hennar í kvöld og við erum að fara að leggja seinustu hönd á verkið áður en það fer í prentun:haha:

Svo var karlinn að segja mér það í gær að við erum að fara til austurríkis í næstu viku.. ætlum að skella okkur í svona 5 daga... verður svo huggulegt.. já mig bara eiginlega hlakkar svoltið til að fara að hitta alla þar og já auddað verður eitthvað kikkað í öll mollin8)

Kem svo eflaust heim seinnipartinn á miðvikudeginum 18 og svo er það bara köben 19:haha: Er gjörsamlega að springa hérna... hlakka svo geggjað til. Nanna og Lauga frænka koma frá klakanum og svo ætlar hún systir mín auðvitað líka að koma... þetta verður svo gaman:haha: 5 gellur saman í 4 daga.. eins gott að taka góða gönguskó með;)

Well... best að fara að gera eitthvað allt annað.

Farvella:*

» 33 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 20:57:53 / shaggy

FINISH!!:)

LOKSINS..loksins er minni skólagöngu lokið.. í bili allavegna:haha: Kláraði 8 sept og er bara búin að hafa það of gott síðan, eða getur maður haft það of gott??
Hilda mín kom til mín deginum fyrir lokaprófið og var minn liður í módel í lokaprófinu.. var því miður svo óheppin að hafa hana ekki sem mitt módel en fékk alveg fínasta módel í staðinn. Kláraði það bara með glans, ef að maður má nú segja þannig sjálfur. Svo var nottlega áfanganum fagnað með gellunum úr skólanum og svo nottlega með fjöldskyldunni og vinunum.

Svo núna er ég bara að kenna verklegar greynar í skólanum 2 x í viku og verð ég að gera það þangað til í lok okt en þá ætlar vinan hvorki meira né minna en að opna sína eigin stofu.. ef að allt gengur nú upp.. vona það.. er orðin svo agalega spennt fyrir þessu.. búin að redda mér vörumerkjum.. bæði húðvörum og makeup vörum.. vantar bara að fá leyfi frá kommunen.

í byrjun okt er svo planið að skella sér með karlinum í nokkra daga til austurríkis og svo verður köben könnuð og tjúttuð um miðjan okt... brjálað að gera hjá kerlunni;) Svo hef góða afsökun fyrir bloggleysi.. allavegna næsta mánuðinn..

Farvella:*

» 21 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 12:42:30 / shaggy

2 vikur eftir!!

Held barasta að mitt langa og góða sumarfríi frá þessari síðu minni ef að maður getur kallað hana það sé núna loksins á enda. Fer á netið á hverjum degi og les næstum öll blogg sem að ég kemst yfir en hef ekki verið alveg að nenna að rækta mína eigin síðu.

EN sumarið er búið að vera alveg geggjað í alla staði... náði einu mjög góðu kvöldi með gellunum mínum á Hangerfestivalen og náði að heyra Brooklyn Bounce:haha: svo hrikalega geggjaðir. Svo var ég í 3 vikur á fróninu góða.. fór á snilldar bekkjarmót þar og náði að dúlla mér og njóta þess að vera til... en tókst svo svona snildarlega að missa af fluginu mínu aftur út.. já ég skil ekki hvernig ég fór af því en það reddaðist svo þannig að ég gat tekið flugið út frá keflavík daginn eftir.. Takk Rósa mín og Hóddi fyrir gistinguna.. þið redduðuð mér alveg og takk elsku Issa mín fyrir allt vesenið:* Svo var alveg djammaður af sér botninn á vorbassemarkeð með gellunum mínum og svo tók bara alvaran aftur við.. skólinn.

Ég er búin að ná 2 skriflegum prófum og bara 1 skriflegt eftir á morgun og svo eru bara 2 verkleg próf í næstu viku og svo er ég víst bara útskrifuð snyrtifræðingur:haha:.. svona ef að allt gengur eftir;) En ég slepp nú ekki alveg við skólann þar sem að ég mun kenna þar 2 daga í viku verklegar greynar fram í lok okt... finnst það voða spennó og hlakka bara til.

Svo er það bara Sönderborgin fallega um helgina með Beggunni minni, Marianne og Dóru.. gellurnar eru búnar að leija sér hyttu þar í bæ og ætla laglega að hafa það gott.. fara á djammið, kikka í búðir og bara njóta þess að vera til alveg útí eitt:haha:

Jæja best að reyna að fara að læra eitthvað fyrir prófið á morgun.. Hafið það gott elskurnar:*'

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 19:54:23 / shaggy

Á klakanum:)

Jæja þá er maður bara staddur á gamla fróninu og bara í góðu yfirlæti hjá Helgunni minni og hennar fjöldskyldu:) Alltaf svo gott og gaman að vera hjá þessum elskum í borginni.

Svo er það víkin góða á morgun.. hlakka ekkert smá til að koma þangað og hitta alla.

En símanúmerið mitt á meðan ég er á fróninu er: 6619321

Heyrumst:*


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 20:51:17 / shaggy

Fiskur Á Þurru Landi

Ummm yndislega sumarið er sko sannarlega komið hingað til okkar í danaveldinu8) Þó svo að ég sé nú kannski ekki alveg beint að höndla allan þennan hita dag eftir dag.. þá er þetta nú samt svo æðislegt. Allt og allir eitthvað svo glaðir og ánægðir með lífið.. alveg eins og það á að vera.. og ég er sko einmitt ein af þeim sem er sko vel ánægð með lífið þessa dagana:haha:
Gengur bara agalega vel í skólanum og kom sjálfri mér vel á óvart að ég nældi mér bara í 11 í einu prófinu sem að ég var í, í seinustu viku:haha: Sá meira að segja að kennarinn minn var líka hissa af þessari útkomu en jú jú gamla getur þetta alveg þegar hún nennir að leggja eitthvað á sig. En var svo í prófi í beinum, vöðvum, hjartanu og sellunum núna í gær og það gekk svona la la.. fékk bara 8 í því prófi en var alveg sátt með það. Þakka bara fyrir að ég hafi ekki valið að verða læknir eða eitthvað álíka:$

En við karlinn vorum á svona snilldar útihátíð á laugardaginn..Rock under bruen.. vorum V.I.P gestir og það var sko meira það sem að það var dekrað við mann.. ummm ekkert kvartað þann daginn:haha: Vinnan hans Daniels bauð okkur og jú, brjálað gaman!!! Kim Larsen, Deep Purple, Stadus Que, TV2, Saybia og fleiri góðir listamenn voru að spila undir opnum himmni í 28 gráðum og brjálaðri sól.. enda voru ófáir öllarar sem að runnu sko ljúft niður þann daginn;) Og shit.. magnið af fólkinu sem að var þarna.. frétti að það hafi verið um 30.000 manns þarna.. enda vel stappað.

Svo er það bara Ísland bráðum... brottför er frá köben 1 júlí og ætla ég að stopa í næstum 3 vikur á fróninu.. það verður sko ljúft.. hlakka svo til að hitta alla og eyða góðum tíma með þeim:haha: Já Hilda mín, það verður sko æði að við verðum loksins heima á sama tíma.. eigum laglega eftir að hugga okkur:haha:

Well Herdís Glaða kveður að sinni:*


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 23:21:01 / shaggy

Krissi fermdur.

Já, fyrir lifandi löngu kominn tími fyrir smá línur hérna.. en eitthvað hefur tíminn nú verið minni til þess:$ Er alveg að drukna í skólanum og brjálað að gera í vinnunni.. rétt næ að sofa þess á milli.. og sé ekki fram á mikla hvíld fyrr en 14 júni8|

En elsku litli bróðir minn var að fermast í gær.. jú jú lásuð rétt.. hann er orðinn fermdur drengurinn. Og mér sem finnst bara ég rétt vera fermd;) En það eru víst 10 ár síðan að það gerðist og verður því einmitt fagnað vel í sumar... super mikil tilhlökkun í gangi. En já að fermingunni.. æðisleg athöfn.. presturinn fyndinn og æðislegur barnakór. Var svo stolt af litla bróðir mínum, hann var sko langtum sætastur og fínn í taujinu. Flestir strákarnir sem að hann fermdist með voru bara í gallabuxum og jökkum sem að var ritað eitthvað álíka fáránlegt og GANGSTER!! Hvað er málið?? Hver leyfir barninu sínu að vera í slíkum fatnaði á sjálfum fermingardeginum? Veit að hún amma mín átti sko ekki til orð.. já og við hin líka. En Krissi minn var svona rosalega fínn í svörtu jakkafötunum sínum, í bleikri skirtu og með hvítt bindi.. agalegur tappi :haha: Svo var haldin svaka veisla heima hjá þeim gömlu í alveg yndislegu veðri..grillað og svaka bombur... Í einu orði alveg æðislegur dagur. Fyrir utan það að bróðir minn var í fyrstu ekkert alltof sáttur við gjöfina sem að ég og Daniel gáfum honum (hálsmen) en núna fynnst honum það sjúklegt.

Svo voru Soffía móða, Davið Helgi og Hilda mín að fara heim í dag. Soffía er búin að vera hjá mér í að verða viku og var gott og gaman að hafa hana hjá mér.. takk fyrir heimsóknina Soffía mín. Svo kom Hilda á fimmtudeginum og var líka hjá mér.. alltaf jafn æðislegt að hafa hana hjá sér.. vona bara að það verði ekkert of langt þangað til að við sjáumst aftur. Heyrðu, Hóddi, Rósa, Tryggvi, Halldóra  og amma Halldóra komu líka. Og auðvitað æðislegt að sjá þau öll.. en sérstaklega Halldóru Mjöll þar sem að ég var að sjá hana í fyrsta skipti.

Svo er það bara júrovísion um næstu helgi.. aagggaalega hlakkar mig til. Við stelpurnar ætlum að hafa geggjað partý og dinner.. verður svo gaman hjá okkur.. kan ikke vente:!:

Jæja komið nóg.. mun skella inn myndum úr fermingunni fljótlega.

Hafið það gott elskurnar:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 21:24:29 / shaggy

Með standpínu;)

Blessuðu páskarnir bara á enda og við tekur bara skóli, meiri skóli og vinnan. Ahh og kannski smá djamm á milli;) En páskarnir hafa bara verið með þeim betri í þetta skiptið.. var svo heppin að hafa 2 yndislegar frænkur mínar hjá mér í heila viku, Helguna mína og Soffíuna mína. Og erum við sko búnar að hlæja fyrir næstu árin:!: Og auðvitað vorum við duglegar við það að kanna alla skemmtistaði í nágrenninu og var þar af leiðandi drukkið alveg ágætis magn af bjór. Svo voru mollinn þrædd og matsölustaðirnir kannaðir og jú jú alltaf fengið sér eitthvað súper gott að borða eins og okkur einum er lagið:haha: TAKK dúllurnar mínar fyrir frábæra viku:*

Jam svo er það bara frónið í sumar.. hlakkar alveg geggjað til maður. Var seinast á fróninu árið 2004.. i know.. hræðilegur árangur hjá manni. En það verður gott og gaman að koma og hitta alla.

Later!

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 18:11:47 / shaggy

Gleðifréttir:)

Verð bara endilega að deyla þessu með ykkur. Gamla var í fríi frá skólanum í dag og var sko búin að ákveða að sofa lengi og hafa það kósý. Var meira að segja búin að láta karlinn setja myrkra gardínurnar upp svo að ég væri nú alveg viss um að ekkert dagsljós mundi trufla svefninn minn... en þar skjátlaðist mér.. gleymdi alveg að setja gemsann á silent8| Og yfirleitt ætti það nú ekki að skipta neinu máli þar sem að fólk hringir nú ekkert mikið í mann.. alltaf bara sms. En jú jú síminn minn hringdi kl 08:25 takk fyrir. Ég náði nú ekki að svara þar sem að ég var svo fúl að hann hafi vakið mig. En ég druslaði mér svo á lappir um kl 9 þar sem að ég var nú að deyja úr forvitni yfir því að síminn hafi hringt svona snemma.. og hver ætli hafi hringt. Þá var það eigandinn af Beauty Team sem var að reyna að ná mig:D Sotti nefnilega um vinnu hjá honum fyrir 2 vikum síðan og hafði síðan ekkert heyrt frá honum.. og var þar að leiðandi búin að gefa upp alla von á þessari vinnu. En ég hringdi svo til baka til hans og hann bað mig um að koma í samtal til sín straks í dag:D Daniel tók sér fríi fyrr frá vinnunni og brunuðum við hjúin til kolding. Þegar að ég kom inn á stofuna/búðina byrjaði ég bara að svitna og svitna.. voða stressuð eitthvað. En eftir frábært samtal sem að tók 45 mín var ég bara ráðin á staðnum:haha::haha:
Já ég svíf sko á bleikum skýjum núna. Þetta er nottlega bara drauma job fyrir alla snyrtifræðinga.. geggjað:!: Ég mun sjá um sölu af öllum gerðum af snyrtivörum, græja pantanir og svo mun ég hafa eitt merki sem að verður bara mitt og ég þarf alveg að sjá fyrir.
Já gæti ekki verið betra:haha:

Þar hafið þið það;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 11:09:31 / shaggy

Bingo!!

Sælt veri fólkið.
Þá er blessuð tölvu druslan komin í lag og allir eru sælir á heimilinu... samt mest karlinn:$ Hann  þarf nú alltaf að fylla aumingja tölvuna af alskonar drasli og vírusvörnum að talvan fór bara í verkfall.. eða fékk einhvern voðalegan vírus. Ég er nú ekkert lítið búin að stríða honum.. hehe.. hann er með allar vírusvörnir sem að til eru og jú jú talvan fær bara vírus;)Æji er svo vond.
En það er bara fínt að frétta úr billund city. Vorið alveg að fara að koma.. vonandi.Var einmitt í gær að kikka í nokkra kassa útí bílskúr og fann alla sandalana mína.. ohh get ekki beðið eftir því að geta tekið þá fram og sumarfötin.. dejligt:D Var í fríi frá skólanum í gær og var svo heppin að hún Berglind mín átti líka frí þannig að við fórum í smá könnunarleiðangur.. skelltum okkur til Varde sem að er hva ca 40 km frá Billund og skoðuðum bæinn vel.. og já allar búðirnar líka ;) Versluðum nú ekkert mikið..en það fer að koma af stór eyðslu núna þegar vorið kemur:$ Fundum svo þennan geggjað kósý english pub í miðbænum og tilltum okkur þar og höfðum það kósý. Svo dró mútta okkur með í bingó um kvöldið.. eða banko eins og það heitir á dönsku. Mútta var búin að segja mér að það væri fólk þarna á öllum aldri.. mínum aldri líka. En svo þegar að við mættum leit ég svona yfir salinn til að kanna fólkið..hum.. meðal aldurinn hefur eflaust verið um 60 ára:!: Ég og Berglind vorum langt um yngstar.. fyrir utan eina sem að var 6 ára og var með ömmu sinni. En þetta var samt alveg ágætis skemmtun og efast ekki um að við skellum okkur aftur. Unnum samt ekkert.. frekar fúlt:cry:

Jæja 2 vikur í að Helgan mín og Soffían mín koma til
 mín..hlakkar ekkert smá til :haha: Karlinn er nú eitthvað smeikur við þessa innrás þeirra.. held að hann sé búinn að fá lánað hjólhýsið hjá þeim gömlu og ætlar bara að búa í því á meðan heimsókn þeirra stendur.. hehe nei segi svona.

Best að skella sér í kaffi til múttu og pabba.

Sæl að sinni:*

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 18:08:44 / shaggy

Sauðburður;)

Alveg spurning með að hafa bara svona mánaðarblogg.. hvernig lýst ykkur á þá hugmynd??
Og Helga mín.. ég er sko á lífi.. að ég held. Við erum bara aldrei online á sama tíma.. er næstum online á hverjum degi. Sendu mér sms næst þegar að þú verður online og ég geri mitt besta til að spjalla við þíg. Verðum nú að redda þessu með lestarmiðana ykkar Soffíu. Og jam.. hvernær á að ráðast inní Billund? Hum.. alveg spurning um að senda þér bara mail í staðin fyrir þetta spurningarflóð hér;)

En Billund city er bara á kafí í snjó núna.. ekki alveg að marka það að það hafi verið fyrsti vordagurinn hérna í dk í dag samkvæmt dagatalinu. Honum var allavegna ekki fagnað með sól og sælu.. nei aldeilis ekki.. bara fullt af snjó og vibba:klikk:
Hann má sko alveg hverfa mín vegna.
Annars er bara hið fínasta að frétta. Gamla orðin einu ári eldri..og hrædd um að það sjáist nú, því miður.:( En eina árinu var auðvitað vel fagnað í góðum vinahóp og góðum mat. Hildan mín lét svo loksins af því verða að heimsækja frænku sína og var sko voða yndælt að hafa hana... Hilda mín, herbergið þitt er ávallt ready.. anytime!! En er mikið að spá í að skella mér til hennar núna í mars. Alltaf gott að vera hjá Hildunni sinni:haha: En skólinn gengur bara vel og er gamla að hugsa um að skella sér bara í Make up artistinn straks eftir snyrtifræðinginn.. já brjáluð harka í mér.
Var svo í fysik prófi í gær.. heitir víst eðlisfræði á íslendsku.. og auðvitað reddaði ég því með glæsi.. ohh er svo stolt af mér.. ekki enn búin að ná því að ég fékk 11 í eðlisfræði:haha:

Guð mig dreymdi snilldar draum um daginn!! Þið veltið eflaust fyrir ykkur afhverju fyrirsögnin hjá mér sé "sauðburður". En mig dreymdi að ég væri í sauðburði8| Alveg allt of mörg ár síðan að ég var í sauðburði.. alveg yndislegur tími.. og er ég svo þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri á því að hafa fengið að vera í sauðburði í svo mörg ár. Já ég var sko í sælu í mínum draum.. ekki frá því að ég sakna þess að fara í sauðburð á vorinn:$ Alveg spurning um að gerast sauðfjárbóndi og hafa bara alltaf sauðburð;) Hehe illa rugluð.. i know.

Jæja verð að kveðja.. bækurnar alveg orga á mig.

Hafið það gott elskurnar:*

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 00:31:10 / shaggy

Hvað gera danir nú??

Það er bara allt brjálað hérna í danaveldinu þessa dagana og er maður þokkalega feginn með það að vera íslendingur hérna.. bara spurning hversu lengi það endist8| Múslimarnir senda hatursaugu í allar áttir og við hin sendum þeim bara augun til baka... þeir brennar okkar kirkjur, berja allt og alla, brenna sendiráðin í ýmsum löndum og margt annað.. og þetta allt saman bara útaf einni fáránlegri mynd af Muhammed8| Sem að var nú bara létt djók. Ja hérna.. alveg spurning hvernig þetta allt saman endar. Marianne vinkona ætlaði að skella sér til Tyrklands núna á sunnudaginn.. en er sem betur fer hætt við það núna.. ekki óhætt að fara að fara sem dani til múslima lands þessa dagana. Og ég er sko bara fegin því að hún tekur ekki áhættuna. Vonum að þeir fari nú að róast þessir "skrattar".

En úr Billund city er bara annars fínt að frétta sko.. ég alveg á fullu í ræktinni og það alveg lekur af manni lýsið eftir 20 mín á hjólinu;) Alveg yndislega gaman að hafa loksins ákveðið að skella sér og gera eitthvað af viti í sínum málum:!: Skólinn heimtar alltaf meiri og meiri tíma og já meira pláss í mínum heila.. fer sko að verða þraungt í búi þar;) Nei segi svona.. þetta er ekkert mál.. og svo gaman.
En á morgun er ég bara í fríi og ætla sko að sofa LENGI .. ohh sæla:haha: Er að vísu búin að lofa karlinum að ég verði tilbúin kl 12 .. ætla að skella mér með honum og pabba mínum í smá shopping leiðangur til Flensborgar .. held nú samt að það verði nú frekar takmarkað verslað þar sem að ég er að fara með 2 mönnum sem að hata búðir meira en allt.. þá er bara að láta frekjuna í mér ráða völdum á morgun;)

Og þar sem að ég er að verða hund gömul.. 24 ára.. á miðvikudaginn er ég búin að bjóða til teitis hjá mér á laugardaginn.. verður dinner og alles og Beggan mín ætlar að taka singstar með.. svo sjúklega gaman:haha:

Jæja lömbin mín.. kveð að sinni:*

» 13 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 21:44:33 / shaggy

Allt að gerast.

Jæja elskurnar mínar..þið sem ennþá nennið að kikka hingað inn. Alltaf svo very busy að bloggið alltaf gleymist.. eða er seinast í röðinni.. og ekki sé ég nú fram á það að geta bætt það eitthvað.. but i try my best.
Í seinasta blogginu mínu talaði ég um að fara að skoða dauða rússa.. sem og ég svo gerði..jesús minn góður.. það var all svakalegt get ég sko sagt ykkur.. varla frásögu færandi. Það var voða spennandi að skoða þá en líka frekar mikill vibbi. Ég tók fullt af myndum en veit ekki alveg hvort ég eigi nokkuð að vera að setja þær hérna inn.. allir fá bara illt í magan af því að skoða þær. Og guð lyktin.. eins sú versta get ég sagt ykkur.

En yfir í annað.. jújú sú gamla er bara byrjuð að stunda ræktina get ég sagt ykkur. Er búin að fara 2 sinnum og er búin að kaupa mér mánaðarkort:haha: Var alveg voða hissa yfir því hversu hrikalega gaman þetta er. Mér líður alveg eins og nýrri manneskju þegar að ég er búin að puða. Fer saman með Marianne og Beggu.. svona til að bakka hvor aðra upp og hafa félagsskap:haha:Þannig að það verður sko alveg harkan 100..förum 2 í viku á kvöldin og 2 í viku á morgnana áður en við ferum í skóla og vinnu. Já ÆTLA sko að losna við jellyið fyrir sumarið;) Svo eru þær æðislegu fréttir þær frænkur mínar, Helga, Soffía og Hildur ætla að koma til mín yfir páskana.. verður hreinasta snilld að fá þær til mín.. ohh það verður svo gaman:haha: Og já Soffía mín.. ég er búin að vara Daniel við innrás ykkar..hehe. Ég fer alveg að skella bjórnum í kæli svo að hann verði vel kaldur þegar að þið komið;)

Jæja nóg í bili... erfitt að blogga of mikið í einu;)

Knús elskurnar:*

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myndirnar minar:)